HÚSGÖGN EINS OG ÚR DRAUMUM? HJÁ OKKUR ALLAVEGA!
Við útbúum frumhönnun fyrir eitt rými þér að kostnaðarlausu. Ef þú velur framleiðslu á húsgögnum hjá okkur færðu fullbúið verkefni án aukakostnaðar.
Ef aðeins er óskað eftir innanhússhönnun án framleiðslupöntunar, er fullbúið verkefni greidd þjónusta.
Sérsmíðuð húsgögn
Þegar þú ákveður að panta sérsmíðuð húsgögn frá okkur öðlast þú rými sem er sérhannað einmitt fyrir þig. Í pöntuninni er innifalinn uppdráttur og sérsmíðaðar innréttingar sem uppfylla hæstu gæðakröfur. Fegurð, fágun, notagildi – þessir þættir einkenna vanalega sérsmíðuð húsgögn. Við bætum við það hæstu gæðum!
Fyrir hverja er þetta fullkomin lausn?
Sérsmíðuð húsgögn munu standa undir væntingum ef þú kannt að meta persónusniðnar lausnir. Þessi möguleiki er einnig fullkomin ef íbúðin þín hefur óhefðbundna lögun og fjöldaframleiddar innréttingar samrýmast ekki hugmyndum þínum. Hafðu samband og gerðu það að verkum að húsið þitt líti út eins og þú hefur gert þér í hugarlund!
Við bjóðum upp HÖNNUN + FRAMLEIÐSLU
Skapaðu einstaka íbúð
Í íbúðinni þinni þarf að vera persónulegt andrúmsloft, ekki satt? Með því að hanna eigin húsgögn setur þú einstakan brag á allt skipulagið í rýminu. Þannig gerir þú það að verkum að þér líður eins og þú sért virkilega heima hjá þér. Hugmyndin er þín en hönnunin og útfærslan er í okkar höndum – fullkomið samspil. Kynntu þér einnig tilboð okkar á sérsmíðuðum tröppum og gerðu að verkum að íbúðin þín verði virkilega þín, í orðsins fyllstu merkingu.
Við framkvæmum öll verk
Við vinnum aðeins með reyndum samstarfsaðilum. Á þann hátt getum við framkvæmt og útfært öll verk, óháð því hversu tæknilega flókin þau séu. Við bjóðum upp á breitt úrval af efnum í boði – krossviður, MDF plötur eða timbur hafa ekkert að fela fyrir okkur. Hafðu samband og uppgötvaðu á eigin spýtur hversu einstök íbúðin þín getur verið!
EFNI Í BOÐI
Tré
MDF plötur
Krossviður




















































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































