SKANDPOL EKSPORT – 10 ÁRA REYNSLA Í VIÐSKIPTUM OG ÚTFLUTNINGI
Í yfir 8 ár höfum við séð um alhliða sölu á vörum fyrir byggingar og endurbætur en einnig um úflutning á byggingarvörum. Við afgreiðum vörurnar okkar á marga staði í Evrópu og um allan heim. Dæmi? Hér koma þau: Noregur, Ísland, Sviss, Svíþjóð, Írland, Kanada, Panama, Kanaríeyjar, Þýskaland, Spánn og jafnvel… Nýja Sjáland!
Í viðskiptum kunnum við að meta fagmennsku, áreiðanleika og persónulega nálgun við hvern viðskiptavin. Við bjóðum upp á mjög fjölbreyttar vörur, allt frá byggingarefnum eins og stál fyrir burðarvirki eða timbur til húsbyggingar gegnum fullbúnar þakklæðningar, fjölbreytt klæðningakerfi fyrir útveggi og einangrun yfir í innréttingar. Meðal þess sem við bjóðum ávallt upp á eru skandinavískir gluggar, Velux þakgluggar, Rockwool steinull, þakskífur úr keramik og steinsteypu, stálklæðningar á þök, gifsplötur, OSB plötur, flísar, baðinnréttingar, húsgögn o.s.frv. Við kunnum að meta að þú hafir það þægilegt. Þess vegna ábyrgjumst við faglega tækniráðgjöf og alhliða stuðning við útflutning.
Þar sem við búum yfir fullkominni þekkingu á tollferlum sem gilda við útflutning getum við greiðlega gengið frá hverri pöntun þar sem afhenda á vörurnar okkar erlendis. Við búum yfir margra ára reynslu í því að skipuleggja útflutning til margra landa í Evrópu og um allan heim. Það skilar sér í fyrsta flokks þjónustu og hagstæðu verði.